Íris hestastelpa

Íris hestastelpa

10.05.2008 03:21:05 / Íris

Lommel fyrir ári síðan !!!

Já þið lásuð rétt, það er sem sagt komið ár síðan ég fór í hina eftirminnilegu Lommel fer og eru DHL-lingarnir þar úti í þessum skrifuðu orðum í 30stiga hita að sötra bjór (reyndar eru þeir ábyggilega flestir sofandi núna en anywho) . Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, ég trúi því varla8|
Freyja Frostrós verður 2ja ára í Október, mér finnst eins ég hafi fengið hana fyrir svona 6mánuðum síðan :!:
En já ég væri svoooo til í að vera úti í Lommel núna, það var svo geðveikt gaman í fyrra8) Mig langar svo að fara eitthvert út í sumar, til sólarlanda og komast aðeins burt frá þessari rigningu á þessu blessaða skeri sem við búum á. Hver ætlar að koma memm ?:d

Ég er alveg ótrúleg, ég má ekki sjá glytta í sólina þá langar mig bara að fara að finna tjaldið mitt og svefnpokann og skella mér í útilegu. Það er bara fátt sem ég veit meira kósý en að kúra í tjaldi í góðu veðri, skríða svo útúr því á morgnanna og það er glampandi sól úti... Ummm gotta love it sko8)
Ég ætla definetly að fara á bíladaga núna í júní, svo pottþétt eitthvað meira - bara verð!!! En mig langar ekkert sérstaklega að fara ein þannig þeir sem vilja koma með eru meira en velkomnir og helst líka einhver sem kann á gítar ( líka þegar hann er undir áhrifum áfengis) :lol:

En ég var svo geeeðveikt dugleg áðan, þó svo að það hafi verið grenjandi rigning, að fara út með hundana og þeir skemmtu sér ekkert smá vel og komu svo reeeennandi blautir inn að það hálfa væri hellingur8| Tók nokkrar myndir af þeim saman, þau eru svo sæt;)

Æi ég nenni ekki að skrifa meira núna enda er klukkan 20mín yfir 3 um nóttina :o

NÝJAR MYNDIR UNDIR DJAMM OG FLEIRA Í MAÍ :d


kv.
-Íris Hrönn


http://iris-hronn.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1046447

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 01:41:15 / Íris

Nýjar myndir

Nýjar myndir, hérna inná, inná myspace-inu mínu http://myspace.com/iris_hronn og inná http://mojito.tk allir að kíkja 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 01:31:23 / Íris

Betra seint en aldrei, right ??

Já sæll sko... Aðeins of langt síðan seinast, en jæja i´m back:)

ég er flutt aftur í krossmóann, en reyndar í nýrri blokkina og í stærri íbúð...Ég og Freyja höfum það rosalega fínt hérna og íbúðin er rosalega kósý! Ég er ennþá að yfirnördast á Domino´s í keflavík og er í fjarnámi í FG þannig það er allt að ganga mega vel hjá mér núna8)
plús það að hestarnir eru komnir inn þannig ég gæti ekki verið ánægðari:d En ég er nú samt ekkert búin að hafa alltof mikinn tíma til að fara á hestbak, vinna frá 10-20 alla virka daga og þegar maður á að vera í fríi stoppar síminn aldrei þannig maður fær í raun voðalega lítið frí. Eftir vinnu er maður skít þreyttur og á samt eftir að læra (sem ég btw er að standa mig með prýði í), svo treður maður hestunum, Freyju greyinu og svefn inní þennan litla tíma sem maður hefur eftir:$

En þetta reddast þó allt saman, þó svo að ég laumist nú stundum fyrr úr vinnunni ef ég er búin að vera extra dugleg yfir daginn, og fari á hestbak og hreyfi Freyju í leiðinni ;)

vá eins og alltaf tala ég bara um hesta :lol:

Ég er nú líka ekki alveg búin að vera að standa mig í vinagírnum heldur og hef sama og ekkert gert með vinum mínum undanfarna mánuði, eða síðan ég tók við sem verslunarstjóri, en það verður breyting á þeim málum í þessum skrifuðu orðum8)
En jæja ég er víst með lítinn hrjótandi næturgest uppi í rúmi hjá mér (Kristján litli bróðir minn) þannig ég ætla að fara að hætta þessu.

Erla mín til hamingju með 21 árs afmælið þitt í dag:d


Kveðja
Íris Hrönn, komin í sumarskap:)

Læt fylgja með eina mynd af sætustu systkinum landsins á nörda árshátíðinni;)
http://iris-hronn.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=896338

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 16:45:38 / Íris

Gleðilegt nýtt ár allir saman :)

Jæja ég er nú farin að verða einhver lélegur bloggari:S En ég skal reyna að bæta það allt!

Það er nú svosem ekkert mikið búið að ske síðan seinast, nema náttúrulega jól og svo nýtt ár - 2008 BEIBÍ8)

 

Ætla að koma með nokkra punta yfir það sem gerðist á árinu 2007 í mínu lífi :)

  • Fékk Freyju þann 26.desember 2006 (hey árið var nú næstum búið;)
  • Ég og Gunnar hættum saman í lok maí
  • Ég flutti út úr íbúðinni minni í september
  • Ég hætti hjá DHL og bauðst verslunarsjórastarfið á Dominos
  • Kynntist Rúnu almennilega - urðum bestu vinkonur:)
  • Féll á mætingu í skólanum, í annað skipti :(
  • Djammaði af mér rassinn í sumar
  • Keypti mér nýjan bíl sem ég btw ELSKA
  • Flutti aftur heim til mömmu og pabba
  • Fór á þjóðhátíð í eyjum með skvísunum mínum:D
  • Fór til Lommel í belgíu og djammaði endalaust
  • Varð tvítug :D

 

Svo gerðist margt annað sem ég man ekki eftir í augnablikinu, en þessi listi er samt engan veginn í réttri röð bara smá upptalning ;)

 

Kv.

Íris Hrönn 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 02:49:04 / Íris

wow alltof langt síðan seinast:O

Já vá það er orðið svoldið mikið langt síðan ég bloggaði seinast8|

Málið er bara að af einhverjum ástæðum kemst ég ekki inná síðuna mína heima hjá mér:!: En það er nú heldur betur margt búið að breytast síðan ég bloggaði seinast!

Ég og Freyja erum fluttar heim til mömmu og pabba - tímabundið reyndar... En það er bara fínt að vera komin aftur til þeirra, hefur að sjálfsögðu sína og kosti og galla, svoldið skrítið að vera ekki eins frjáls og maður var en það venst :)

Ég er farin að vinna aftur á domino´s, en ég er orðin verslunarstjórinn þar og komin á þrusu góð laun:D Er í smá pásu í skólanum en ég sótti nú samt um að fara aftur eftir áramót og svona til vonar og vara ef ég skildi nú ekki komast inn þá sótti ég líka um í fjarnámi, þannig maður klári nú þennan stúdent einhvern tíma fljótlega svo ég geti nú farið að skella mér á Hóla í Hjaltadal :)

Ég stefni svo á það að reyna að finna mér íbúð fljótlega eftir áramótin :)

Núna fer heldur betur að styttast í að hestarnir fari að koma á hús, þannig ekki búast við að sjá mikið af mér um þann tíma :p eins og flestir sem þekkja mig vita að þegar hestarnir koma inn þá bý ég næstum því uppí hesthúsi:D líður lang best þar!!

Een ég ætla að láta þetta gott heita, vildi bara aðeins sína að ég sé á lífi:)

Hey gellz djamm á laug eða ?

Kv.

Íris Hrönn


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 02:48:14 / Íris

Allir að taka þátt :D

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifinn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í þrem orðum.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 01:25:18 / Íris

What the fuck ?

Ég var búin að skrifa geðveikt langa færslu og svo bara hvarf hún ????? Brjáluð sko:evil:

Nenni nú varla að skrifa eitthvað meira, er meira að segja illt í puttunum eftir þetta!

Hmm lítið að frétta, er bara búin að vera að djamma um helgar með öllum, as u all know... Fór reyndar í réttir til Jóhönnu þar seinustu helgi og dróg hellning af kindum, er sko ennþá með marbletti á lærunum máli mínu til stuðnings:o

Já það reyndi við mig sveitastrákur sem var búin að eyða öllum réttardeginum í að glápa á mig, ég sagði nei við hann á ballinu, fattaði svo eftir á að ég hefði nú alveg getað farið fínna í það að segja honum það að ég hefði ekki áhuga8| strákgreyið verður kannski aldrei samur, jújú ég var nú ekki svo vond ;)

Svo erum við Freyja að flytja aftur heim til mömmu og pabba :) verður erfitt fyrst en svo verður það bara gaman ;)

Hmm lítið annað að frétta, heyrðu jú ég er loksins orðin tvítug :D Átti afmæli þann 5.september, uhumm á reyndar eftir að halda partýið ;)

 

Jæja kveð í bili...

 

Hehe þessi mynd af Damma er bara snilld ;)

 

kveðja

Íris Hrönn


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 14:07:51 / Íris

Komin heim:)

Ætla bara að láta vita að ég og Erla komum lifandi heim frá eyjum ;) Ferðasagan kemur seinna:)

kv. Íris sem er ennþá þreytt eftir þjóðhátíðina 8)

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 10:10:59 / Íris

Á morgun :D:D

Jæja klukkan er 10, ég búin að vera í vinnunni í 2 klst og er bókstaflega að deyja úr spenning sko!

Ég, Erla, Andrea og Tinna erum að fara til eyja á MORGUN! Trúiði því hvað þetta er búið að vera rosalega fljótt að líða ?? Ég trúi því varla sko... Veðrið yfir allt landið á að vera alveg ömurlegt um helgina, grenjandi rigning og rok ALLA HELGINA8| Eeeennn það er bara eftirminnilegra ;) Þannig að stefnan er tekin á RVK city í dag í 66°Norður að kaupa sjógalla, já gott fólk þið lásuð rétt, ég ætla að kaupa mér alvöru sjógalla því ég ætla ekki að verða á floti og öll fötin rennandi blaut bara á fyrsta degi8)

Þannig sjógallinn og lopapeysan verða alveg málið alla helgina ;) Svo er mamma mín svo góð (náttúrulega alltaf bestust) að lána okkur göngutjaldið sitt, sem þolir mjög mikla rigningu og rok ;) sérbúið fyrir þessar týpísku íslensku aðstæður :lol: Þannig það ætti að verða fínt hjá okkur, ættum alla vega ekki að vakna í polli á laugardagsmorguninn;)

En svona þið sem hafið farið áður,, hvað í ósköpunum tekur maður með sér ?? ég er alveg lost í þeim málum, ætlaði að vera löngu byrjuð að ákveða það en svo að sjálfsögðu er ég ekkert búin að plana né gera og ég er að fara á morgun 8| ekta ég alveg hreint:!:

Jæja verð að halda áfram að vinna, þar sem ég verð í fríi á morgun og á föstudag og það er enginn sem leysir mig af þannig það er nóg að gera hjá mér :S

kveð í bili...

kv. Íris Hrönn eyja,,peyji":haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 09:01:24 / Íris

Hvað er að gerast með heiminn ???

Er fólk algjörlega búið að missa vitið ? Svo virðist alla vega vera, Erla, Tinna B, Steinunn og Ólöf Petra fóru á djammeríið í borg óttans á laugardagskveldið... Tinnu og Ólöfu var skutlað niður í bæ og Ásta frænka hennar Erlu og vinkona hennar voru sóttar... Steinunn, Erla, Ásta og vinkonan fór síðan niður í bæ og biðu í röð til að komast inná sólon... Einhverjar 3 trukkalessur ruddust framfyrir þær í röðinni og vinkonan spyr hvort að þær séu eitthvað merkilegri og megi bara ryðjast svona framfyrir fólk, trukkarnir fór víst eitthvað að rífa kjaft og þá spyr Erla þær hvort það sé nú ekki allt í lagi hjá þeim? Þá tekur einn trukkurinn sig til og kastar bjórflösku í hausinn á Erlu8| Ásta reynir að verja frænku sína þá rífa þær í hárið á henni, henda henni í jörðina, sparka í hana ein  ein beigir sig niður og BÍTUR STYKKI ÚR EYRANU Á ÁSTU!!!!!!!!8|:evil:Svona í alvöru hvað er að ???? Núna liggur Ásta inni á spítala að bíða eftir því að komast í lýtaaðgerð!

Pæliði í þessu, fólk er orðið vangefið! Hver bítur líkamspart af einhverjum ? Hvað í ansk... gerði hún við stykkið sem hún beit af? át hún það ?

Úff svona pakk er ástæðan fyrir því að RVK er kölluð ,,borg óttans" ég veit það alla vega að ég er EKKI að fara að djamma í rvk neitt í bráð, jafnvel aldrei bara :(

Eeeennn reynum að hressa okkur aðeins upp eftir þessa sögu....

 Núna eru bara 3 dagar í þjóðhátíð og tilhlökkunin leynir sér augljóslega ekki :D Get ekki hætt að brosa sko;) Ætla að fara í 10-11 á eftir og kaupa mér miða í dalinn svo þarf maður að fara að finna tjaldið og svefnpokann og svona:) Fara að gera þetta allt klárt, því það er ekki sjéns að þegar við verðum komnar hálfaleið á flugvöllin að við uppgötvum að við höfum gleymt einhverju, það er bara ekki að fara að gerast! Ætla að muna eftir öllu :D

Hvað þarf maður annars að hafa með sér ? :$

Tjald, svefnpoka, kodda, ullarpeysu, pollagalla, húfu, vetlinga, nóg af hlýjum fötum, föt til skiptana... Hvað meira ??? Er ooof spennt til að hugsa núna 8) Ætlaði samt bara aðeins að deila þessum atburði helgarinnar með ykkur..

Hætt í bili

kv. Íris Hrönn að deyja úr spenningi :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 11:21:57 / Íris

Spenningur dauðans:O

Ég er bókstaflega að deyja úr spenningi núna, ég get varla beðið hélt það væri ekki hægt að vera svona spenntur yfir einhverju:| Mér líður eins og litli barni sem bíður spennt allt árið eftir jólunum og tíminn virðist líða svo hægt að hann líður varla8|

Þetta er bara fyndið sko, ég hef svona í alvöru ekki verið svona spennt síðan ég var lítil, ekki einu sinni þegar ég var að fara til Lommel :!: En Ég og Erla fórum að panta peysurnar okkar í gær, Rúna vinkona og Andrea Björk litla mús komu með okkur og hjálpuðu okkur að ákveða hvernig þær eiga að vera:) Við ákváðum að taka svartar peysur (sést minnst á þeim) með bleikum stöfum... Aftan á minni stendur Rizzan og aftan á Erlu peysu stendur Erlið... Svo verður stjarna á hettunni og smilykarl á vasanum framan á, við verðum sko bara í lang flottustu peysunum þarna :D Algjörar skvísur í þeim;)

Við ákváðum samt að taka þær í víðari kanntinum svo við gætum verið í einhverju hlýju innundir,  því það þýðir nú ekki að vera búin að panta sér svona flottar gellupeysur og vera svo alltaf í öllu utan yfir þær þannig þær sjást ekkert8) Við eigum svo pantað flug milli 2 og 3 á fimmtudaginn, og fyrir algjöra heppni fékk ég laust í sama flugi og Erla, því eins og einhverjir vita þá vorum við Erla búnar að plana að fara en ég hætti við, þá var músin mín búin að kaupa sér flugmiða:( En ég hringdi í gær og spurði hvort það væri einhver sjéns að það væri laust með henni og konan í bókunnunni var svo elskuleg að hliðra eitthvað til fyrir mig ;)

Við verðum komnar það snemma að við náum að kíkja á allt svæðið og koma okkur vel fyrir áður en við förum að hafa okkur til fyrir ,,húkkaraballið" hver veit kannski ,,húkkar" maður í einhvern á þessu blessaða balli, ekki það að við séum að fara þangað í þeim tilgangi... ÓNEI kunnum vel við okkur svona frjálsar og á lafandi lausu ;) Miklu skemmtilegra að geta bara gert og farið þangað sem þig langar án þess að láta einhvern vita (Nema ykkur Mamma og Pabbi).

Sakna þess samt alveg stundum að vera ekki í sambandi, öryggið sem fylgir, vakna við hliðiná einhverjum sem þú elskar á hverjum morgni... En ef þetta er ekki ment to be þá er það bara þannig, þýðir ekki að grenja það til lengdar... Erfitt en það venst... Alla vega á fólk ekki að vera í sambandi þar ef það er ekki hamingjusamt með hinum aðilanu og ALLS ekki útaf vana... 8| Komst alveg að því eftir að við Gunni minn hættum saman... En mér þykir að sjálfsögðu ennþá ofboðslega vænt um hann og þetta er besti strákur í heimi8)

Jæja vá nóg af væmnu væli ;) Væri alla vega ekki að fara til eyja í mökk djammferð ef ég væri á föstu, a.m.k ekki ein með vinkonunum :lol:

,, Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil! Skildi maður verða leiður á því til lengdar að vera til? "

Með þessum orðum kveð ég í bili og held áfram að gera það sem ég fæ borgað fyrir að gera;)

                        

 

kv. Íris Hrönn á leið á þjóðhátíð :D

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 10:51:18 / Íris

Eyjar :D

Jæja ég ætla nú ekki að blogga neitt er í vinnunni og það er brjálað að gera ! EEEEEnnn ég varð bara að láta vita af því að ég er að fara á Þjóðhátið í Eyjum með Erlinu mínu og some gellz :D Við fljúgum á fimmtudaginn og komum aftur heim á mánudaginn, þetta verður svo FKN geðveikt!!!!

Ég og Erla eru svo að fara á eftir og fá okkur annað hvort hvítar hettupeysur með bleikum stöfum eða bleikar hettupeysur með hvítum stöfum... Fer allt eftir því hvað er til ;) Aftan á minni á að standa Rizzan og aftan á Erlu peysu á að standa Erlið ;)

Get ekki beðið eftir því að fara, enda búin að ætla síðan ég heyrði fyrst um þetta og þá vissi ég nú eiginlega ekki einu sinni hvað var í gangi á þessum umtalaða stað8)

Við ætlum svo fljótlega að fara að plana hvað það er sem við þurfum að taka með okkur, enda ætlum við ekki að láta okkur verða kalt og verður sko tekinn með góður pollagalli, lopapeysa, húfa, vetlingar, þykkir sokkar og svona mætti lengi telja :D Vá þið ættuð að sjá mig núna í vinnunni, er eins og lítið barn að bíða eftir jólunum, bókstaflega iða í stólnum hérna að reyna að vinna en næ ekki einu sinni að einbeit mér því ég er alltaf strax farin að hugsa um þetta ;)

Upphaflega planið var nú alltaf að fara til eyja en svo hætti ég við það og var svona búin að stefna á að fara á Akureyri en það beiluðu bara allir sem ég ætlaði með þannig Eyjar Here I Come, er btw búin að kaupa miða núna þannig ég beila ekki ;) Eða réttara sagt mamma og pabbi eru búin að gefa mér fyrir því :D

Á nefnilega svo góða foreldra sem ætla að gefa mér ferðina :D En þarf að halda áfram að vinna núna, er liggur við farin að telja niður klst. þangað til við förum til eyja ;)

Kveð í bil mín heitt elskuðu ;)

 

kv. Íris Hrönn á leiðinni á Þjóðhátíð :D

p.s. það er nóg af lausum flugplássum til eyja þannig að þeir sem geta ekki lifað án þess að sjá mig þennan tíma, endilega skella sér bara með! Því ef ég er ekki á staðnum með ykkur er ekkert stuð:D

Over and out


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 19:28:39 / Íris

Hvaða læti eru þetta ? :O

Stelpur mínar alveg rólegar, það kemur alltaf eitt stikki blogg þegar þið eigið síst von á :D

Eins og t.d. núna ;) Hey já og fullt af nýjum myndum, líka frá Lommel !!! Er svo fkn dugleg þegar ég nenni því 8)

Hmm man ekki hvort það sé eitthvað nýtt að frétta? Ég er bara búin að vera að vinna, vera á hestbaki, rúntandi og á djamminu.. Humm hvað er ég að segja ykkur það, þið eruð alltaf með mér, döööö :!:

Rúna átti afmæli í gær, en hún varð 19 ára skvísa... Hún er einmitt að halda uppá það í kvöld:D

Ég er mikið búin að vera að passa húsið fyrir mö og pa þar sem þau ferðast útum allar trissur þessa dagana :) Þau vilja ekki að ég sé mikið ein í íbúðinni, hey til hvers halda þau að ég hafi upphaflega fengið mér hund ? hehe þótt að hún sé meira eins og barnið mitt en hundurinn minn, hún gæti ekki verndað húsið fyrir innbrotsþjófi þótt hún myndi reyna, hvað á hún að gera sleikja hann til dauða ??

 Jæja nóg af tuði...

Ég hef samt ekkert að segja núna, vildi bara láta vita að ég er enn á lífi;) Blogga aftur þegar eitthvað hefur gerst, hvernig væri eftir helgi ?:D gerist alltaf eitthvað um helgar :klikk:

kveð þangað til á mánudag, og já ég lofa að blogga á mánudaginn;)

Íris Hrönn 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 14:45:18 / Íris

nýjar myndir !!

...

» 10 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 09:52:34 / Íris

Allt að gerast !!

Það er nú greinilega orðið soldið síðan ég bloggaði seinast 8|

Eeen enginn skaði skeður ;) Nú þann 9.júní var hið fræga Splash-partý á Trix og hélt ég smá fyrirpartý heima hjá mömmu og pabba þar sem íbúðin mín rúmar svona 4 manns:$ ooog svo var ég líka að ,,passa" húsið ;)

Krakkarnir byrjuðu að koma uppúr 10 og var þetta  bara mjög gaman og ég held að flestir hafi skemmt sér vell  ;) Við fórum svo niður í bæ um hálf ;)

Það var sko tekinn trylltur dans á Trix og ég og erla tókum ,,perrakalladansinn" nokkru sinnum ;) Þetta var bara geggjað  ;)

Kvöldið endaði svo á því að ég lagðist dauðþreytt í rúmið þeirra mömmu og pabba  :D

 

Bíladagar....

Já bíladagar voru svo seinustu helgi eða helgina 15-17. júní :) Ég og Erla ætluðum að leggja af stað ekki seinna en 2 en það tafðist soldið því ég var að kaupa mér nýjan bíl og þurfti að bíða eftir að hann kæmi niður í toyotu :S Hann keyrði svo í hlað um hálf 4 þá var bara drifið í því að skrifa undir og reyna að leggja af stað... En þá áttum við eftir að sækja smá dót heim til erlu, heim til mín og heim til mömmu og pabba:)

Við vorum svo komnar langleiðina á reykjanesbrautinni þegar alltí einu rann það upp fyrir mér að svefnpokinn minn hafði orðið eftir:lol: Algjör haugur stundum ....

Við snérum við á punktinum og brunuðum eftir pokanum... Þegar hann var kominn öruggur í aftursætið var loksins hægt að byrja ferðalagið okkar :D

Við ætluðum að stoppa á ÖLLUM sjoppum sem hægt var að stoppa í en enduðum á að stoppa bara í 3 af þeim... Fengum okkur pulsu og MIX á borganesi en í hinum sjoppunum var bara pissað ;)

við vorum síðan komin á Akureyri klukkan hálf 11 um kvöldið og áttum þá að sjálfsögðu eftir að gera allt... Við rúlluðum upp á tjaldstæðið í Hömrum og kíktum þar inn... Svæðið sem okkur var sagt að fara á var hreint út sagt ógeðslegt8| Spítt fíklar dansandi eins og þeir ættu lífið að leysa og aðrir pissandi á tjöld!!! við ákváðum nú að við ætluðum ekki að láta bjóða okkur þennan viðbjóð og fengum að fara á fjölskyldusvæðið, þar sem allir krakkarnir höfðu BTW tjaldað ;)

Þegar við vorum komnar á svæðið gat fjörið loksins byrjað :D

Föstudagskvöldið var svosem ágætis stemmari eeen hún jóhanna mín var alveg hápunktur kvöldsins...

Þegar við ætluðum svo að fara að sofa heyrðum við fólkíð í næsta tjaldi vera að rífast og svo byrjuðu bara slagsmál þars sem Rósa, Gulla, Aron og fleiri vorum (vitum btw ekkert hvaða fólk þetta var, lágum bara dauðhræddar inní tjaldi og biðum eftir því að einhver myndi hringja á lögguna)...

Erla svaf víst eitthvað lítið þessa nótt, en reyndi þó að leggja sig í taldinu og í bílnum, án árangurs8| Ég var síðan vakin eldsnemma við það að hún sagði ,, Íris ég ætla að labba og fá að blása hjá löggunni... Má ég síðan fá bílinn þinn lánaðann" huhhh lánaðann hvert sagði ég þá og þá ætlaði þessi elska að fara EIN í sund eldsnemma á laugardagsmorgni!! Ég hélt nú ekki og reif mig á fætur;)

Kvöldið var síðan tekið með pompi og prakti ;) Þvílíkt stuð :DVið lögðum svo að stað heim klukkan 3 daginn eftir og vorum komnar í kef korter yfir 8 :D

Jæja ætla að halda áfram að vinna;)

kv. Íris Hrönn

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 desember
Afmæli
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1288 dögum
Rúna verður tvítug !!!
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan